Innlent

Þyrlan sótti sjúkling eftir að sjúkrabíll í forgangsakstri lenti í árekstri

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá vettvangi slyssins en sjá má glitta í þyrluna yst til hægri á myndinni.
Frá vettvangi slyssins en sjá má glitta í þyrluna yst til hægri á myndinni. Vísir/Aðsend
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í hádeginu vegna umferðaróhapps á Vesturlandsvegi til móts við bæinn Gufuá í Borgarhreppi  hádeginu í dag þar sem sjúkrabíll í forgangsakstri lenti í árekstri.

Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á veginum til að sækja sjúklinginn sem sjúkrabíll var að flytja.

Lögreglan í Borgarnesi hefur engar upplýsingar geta veitt um málið þar sem verið er að vinna á vettvangi. Landhelgisgæslan veitir heldur engar upplýsingar og ekki heldur Heilbrigðisstofnun Vesturlands. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×