Innlent

Þyrlan sótti fjögurra mánaða gamalt barn í Þjórsárdal sem hafði brennst illa

Birgir Olgeirsson skrifar
TF-Gná, þyrla Landhelgisgæslunnar.
TF-Gná, þyrla Landhelgisgæslunnar. Vísir/anton
Áhöfn TF-GNÁ, þyrlu Landhelgisgæslunnar, hefur sinnt tveimur útköllum það sem af er degi. Um ellefuleytið í morgun barst beiðni um aðstoð þyrlu vegna barns sem hlotið hafði brunasár í Þjórsárdal eftir að vatn helltist yfir það. Þyrlan fór þegar af stað og var barnið komið undir læknishendur í Reykjavík rétt rúmlega tólf á hádegi.

Annað útkall kom svo rétt um klukkan þrjú í dag. Hafði göngukona fallið í Landmannalaugum og slasast. Þyrla Landhelgisgæslunnar var komin á vettvang um fjögurleytið og var konan flutt með þyrlunni til Reykjavíkur þar sem hún var flutt á sjúkrahús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×