Innlent

Þyrlan sækir veikan ferðamann um borð í Magellan

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Skemmtiferðaskipið Magellan á Faxaflóa. Ef vel er að gáð má sjá þyrlu gæslunnar fyrir ofan skipið.
Skemmtiferðaskipið Magellan á Faxaflóa. Ef vel er að gáð má sjá þyrlu gæslunnar fyrir ofan skipið. Vísir/Vilhelm
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á Faxaflóa á þriðja tímanum í dag vegna veikinda ferðamanns á skemmtiferðaskipinu Magellan. Farþeginn verður fluttur á Landspítalann til skoðunar.

Á myndinni að ofan má sjá þyrlu gæslunnar á sveimi yfir skemmtiferðaskipinu fyrir á þriðja tímanum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×