Innlent

Þyrlan kölluð til eftir að kona datt af hestbaki

Samúel Karl Ólason skrifar
Konan flutt í þyrluna.
Konan flutt í þyrluna. Landsbjörg
Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út um klukkan fjögur í dag þar sem einstaklingur hafði fallið af hestbaki í reiðtúr við Löngufjörur.

Þyrlunni var, samkvæmt tilkynningu frá Landbjörgu, lent við slysstaðinn og var viðkomandi borinn um borð og flutt á spítala til skoðunar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×