Innlent

Þyrlan flutti tvo á slysadeild

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ekki er vitað um líðan þeirra sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti eftir umferðarslys á Suðurlandsvegi í dag.
Ekki er vitað um líðan þeirra sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti eftir umferðarslys á Suðurlandsvegi í dag. Vísir/Vilhelm
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti tvo erlenda ferðamenn á slysadeild Landspítalans eftir umferðarslys austan við Hvolsvöll í dag. Ekki er vitað um líðan þeirra.

Tilkynning um slysið barst lögreglu á þriðja tímanum í dag. Að sögn Sveins Kristjáns Rúnarssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurlandi, missti ökumaðurinn stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann fór út af veginum og valt.

Suðurlandsvegi var lokað um tíma vegna slyssins en hann hefur nú verið opnaður aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×