Innlent

Þyrla LHG kölluð út vegna slasaðs göngumanns

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/vilhelm
Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaðar út vegna göngumanns sem slasaðist vestan í Lambafelli í Þrengslum. Talið er að hann sé fótbrotinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var við æfingar með fjallabjörgunarfólki frá Selfossi, Hveragerði og Reykjavík við Sandskeið og var henni og björgunarsveitafólkinu því beint á slysstað. Hún er nú lent og verið er að búa hinn slasaða undir flutning á sjúkrahús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×