Innlent

Þyrla flaug til móts við sjúkrabifreið

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/vilhelm
Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug í dag til móts við sjúkrabifreið úr Búðardal vegna bráðaveikinda. Búðardalur.is greinir frá þessu.

Sjúkrabifreið var kölluð til skömmu fyrir hádegi í morgun vegna bráðaveikinda sem upp komu í sumarbústað á Skógarströnd.

Á vefsíðu Búðardals segir að læknir í Búðardal hafi metið ástand sjúklingsins þannig að ákveðið var að kalla til þyrlu Landhelgisgæslunnar til móts við sjúkrabifreiðina og tók þyrlan sjúklinginn upp í þyrluna við félagsheimilið Lyngbrekku á Mýrum.

Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan sjúklingsins á þessari stundu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×