Viðskipti innlent

Þykjast selja íslenskan lax

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ekkert hefur komið fram sem tengir íslensk fyrirtæki við fölsun þessara vottorða.
Ekkert hefur komið fram sem tengir íslensk fyrirtæki við fölsun þessara vottorða. vísir/Egill Aðalsteinsson.
Í ljós hefur komið fölsun á vottorðum sem framvísað hefur verið á síðustu mánuðum við innflutning á laxi við landamæri Rússlands en þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. Má ætla að tilgangurinn með fölsuninni sé til þess að koma vörum framhjá innflutningsbanni sem Rússar settu á fjölmörg ríki heimsins í ágúst.

Vörunum fylgdu vottorð sem gáfu til kynna að laxinn væri frá Íslandi og framleiddur af íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Matvælastofnun hefur fengið tvö vottorð til skoðunar og hefur staðfest gagnvart rússneskum yfirvöldum að þau séu fölsuð.

Á þessu stigi málsins er óljóst frá hvaða ríki eða framleiðanda þessar vörur koma, en Matvælastofnun og systurstofnun hennar í Rússlandi munu áfram vinna að því að afla frekari upplýsinga eins og segir í yfirlýsingunni.

Sjá einnig: Innflutningsbann Rússa hefur áhrif á íslenskan hlutabréfamarkað

Þar segir einnig að ekkert hafi komið fram sem tengi íslensk fyrirtæki við fölsun þessara vottorða.

Um sé að ræða sendingar af eldislaxi til Rússlands í haust og hafa sumar þeirra komið til skoðunar á landamærastöðvum þar á síðustu dögum.

Á fölsuð heilbrigðisvottorð sem hafa fylgt vörunum er skráð heiti Matvælastofnunar ásamt samþykkisnúmeri og heiti íslenskra fyrirtækja.

Vottorðin sem um ræðir eru ekki í samræmi við samþykkt heilbrigðisvottorð Matvælastofnunar og voru ekki gefin út af henni. Hlutaðeigandi fyrirtæki hafa einnig staðfest að þau framleiða ekki eða flytja út lax til Rússlands.


Tengdar fréttir

Þrítugföldun útflutningsverðmæta á áratug

Á aðeins áratug hafa viðskipti með sjávarafurðir á milli Íslendinga og Rússa tugfaldast. Rússneski markaðurinn fyrir íslenskar sjávarafurðir vex hvað hraðast. Norsk fyrirtæki fluttu 300.000 tonn af sjávarafurðum til Rússlands í fyrra og innflutningsbann því áhyggjuefni þar.

Áfall að lenda á lista Rússa

Íslendingar þurfa að stíga varlega til jarðar í samskiptum sínum við Rússa á næstu dögum og vikum, er mat forstjóra Iceland Seafood. Gríðarlegir hagsmunir eru undir fari svo að innflutningsbann Rússa nái til Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×