MÁNUDAGUR 20. MAÍ NÝJAST 17:44

Íslandsþátturinn sýndur í kvöld

FRÉTTIR

Þykir vænst um fyrstu Edduna

Vísir Lífið 24. febrúar 2012 11:38
Ragna Fossberg í góðum félagsskap leikkonunnar Juliu Stiles við vinnslu á myndinni, A little Trip to Heaven, árið 2005
Ragna Fossberg í góðum félagsskap leikkonunnar Juliu Stiles við vinnslu á myndinni, A little Trip to Heaven, árið 2005 MYND/EINKASAFN
Ragna Fossberg á heiðurinn af útliti og gervi ótal þjóðþekktra persóna sem birst hafa íslensku þjóðinni í sjónvarpi og kvikmyndum síðustu áratugi. Ragna hlaut fjórðu Edduna fyrir störf sín á nýliðinni Edduhátíð. Lífið fékk að skyggnast inn í heim Rögnu og forvitnast um flottan feril hennar.









Það er óhætt að segja að Ragna Fossberg eigi langan og farsælan feril að baki. Árið 1967 byrjaði hún að greiða þulum Ríkissjónvarpsins í aukavinnu og lauk svo námi í hárgreiðslu skömmu síðar. Enn í dag hvetur hún áhugasama um fagið að byrja á því að læra um hár.
„Hár er svo stór partur af útliti fólks, þú sérð hárið miklu frekar en förðunina."

Gott að vinna á Ríkisútvarpinu
Árið 1971 var Ragna ráðin til starfa hjá RÚV og hefur starfað þar allar götur síðan þó með smá hléum á meðan hún hefur starfað við kvikmyndir og leikhús. Hún segir RÚV hafa verið einstakan vinnustað og stutt sig mikið. „Þeir hafa sem betur fer séð hag sinn í því að hleypa mér í önnur verkefni þar sem ég hef alltaf komið með aukna þekkingu til baka."

Lærði mest af danska ríkissjónvarpinu

Það er ekkert sem Ragna getur ekki gert þegar kemur að gervum. Hún býr til skalla, hárkollur, gervitennur og svo mætti lengi telja. Hún sá meðal annars um Spaugstofuna öll þau ár sem hún var framleidd af RÚV. Spurð um þessa þekkingu sína segist hún hafa lært hvað mest af danska ríkissjónvarpinu en þangað fór hún á vegum Ríkisútvarpsins hér á árum áður í þeim tilgangi að læra.
„Svo fór ég í eitt ár til Los Ang­eles til þess að vinna við kvikmyndir og það var sko lærdómsríkt ár," segir Ragna sem slagar í þrítugustu bíómyndina sína um þessar mundir ásamt því að hafa starfað gríðarlega mikið í leikhúsunum við gervi, hár og förðun á ferlinum.

Vann við hrikalegar aðstæður

Ragna við við eina af fyrstu íslensku kvikmyndunum þegar hún var einmitt nýkomin heim frá LA. „Þetta var kvikmyndin Í skugga hrafnsins eftir Hrafn Gunnlaugsson og ég held ég geti sagt það óhikað að þetta voru þær allra hrikalegustu vinnuaðstæður sem ég hef kynnst. Vinnudagarnir fóru allt upp í tuttugu klukkustundir, fyrir utan það að koma sér á staðinn. Ég fór í öll verk, dró lélegt hjólhýsið mitt og tengdi það sjálf, var mikið úti við og það við slæmar aðstæður en það var meðal annars verið að brenna gúmmídekk til þess að skapa réttu stemninguna. Þetta var svolítið sjokk eftir að hafa verið með góða vinnuaðstöðu í flottum hjólhýsum sem litu út eins og hótelherbergi í Los Angeles.

Stjörnur eru bara lifandi persónur
Spurð um stærsta verkefnið sitt á ferlinum segir hún kvikmyndina No Such Thing sem tekin var í Bandaríkjunum og á Íslandi vera það allra stærsta. Meðal þeirra sem fóru með hlutverk í þeirri mynd voru leikkonurnar Helen Mirren, Julie Christie og síðast en ekki síst Baltasar Kormákur.
Ragna segist vera alveg hætt að kippa sér upp við það að vinna með stórstjörnum. „Þetta eru allt lifandi persónur eins og aðrir. Þetta fólk kemur og fer og hefur ekkert meiri áhrif á mig en annað fólk."

Fyrsta Eddan er besta Eddan
Það má ætla að Ragna sé búin að ná mörgum markmiðum sínum á ferlinum og það staðfestir hún. „Hins vegar er eitt sem ég hef að leiðarljósi í starfi mínu og það er að þegar ég hætti að læra nýja hluti þá hætti ég. Í dag langar mig að fara að hægja örlítið á mér enda búin að vinna mikið í gegnum tíðina."
Ragna fór heim með fjórðu Edduna á nýliðinni Edduhátíð og segir það alltaf jafn góða tilfinningu – þó þyki henni allra vænst um þá fyrstu. „Fyrsta Eddan er besta Eddan, bæði var það fyrsta árið sem hún var veitt, styttan er fallegust og valið fór fram í fagnefnd, þar af leiðandi skiptir hún mig mestu máli.

Hleypur ekki eins hratt
Ragna fagnar sextugasta og þriðja afmælisdeginum sínum í næstu viku og segir það hræðilegt að vera komin á þennan aldur með smá hæðnistón í röddu. „Nú er farið að síga á seinni hlutann því ekki lifir maður að eilífu. Svo hleypur maður ekki alveg eins hratt. En ætli ég megi ekki bara vera stolt af aldrinum," segir Ragna Fossberg að lokum.
Í meðfylgjandi myndasafni má sjá Rögnu að störfum við hin ýmsu verkefni.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Lífið 20. maí 2013 13:00

Þetta er framtíðarkonan mín

Hótelerfinginn Paris Hilton lætur sig ekki vanta á kvikmyndahátíðina í Cannes. Hún hefur varið tímanum vel á hátíðinni með kærasta sínum River Viiperi.... Meira
Lífið 20. maí 2013 12:00

Bregður sér í líki Marilyn Monroe

Söngkonan Rihanna var dugleg að deila myndum af sér á Instagram-síðu sinni um helgina. Meðal mynda sem hún deildi voru af henni þar sem hún bregður sér í líki kynbombunnar Marilyn Monroe. Meira
Lífið 20. maí 2013 11:00

Þessar tvær eru alveg með'etta

Leikkonurnar Bella Thorne og Jamie King hafa báðar sést klæðast þessu fallega mynstri frá Katie Ermilio á rauða dreglinum. Meira
Lífið 20. maí 2013 10:00

Steingleymdi nærbuxunum

Leikkonan Eva Longoria sýndi aðeins meira en hún ætlaði sér þegar hún mætti á sýningu myndarinnar Jimmy P. (Psychotherapy of a Plains Indian) á kvikmyndahátíðinni í Cannes á laugardaginn. Meira
Lífið 20. maí 2013 09:00

Innileg fyrir framan alla

Stjörnuhjónin Nicole Kidman og Keith Urban eru einstaklega ástfangin og sáu enga ástæðu til að fela það á kvikmyndahátíðinni í Cannes um helgina. Meira
Lífið 19. maí 2013 18:45

Dorrit mætti í íslenskri hönnun

Heklugos var haldið í annað sinn síðastliðinn fimmtudag á Ásbrú í Eldey frumkvöðlasetri þar sem rúmlega 500 manns fjölmenntu á viðburðinn til að kynna sér hönnun á Suðurnesjum. Heiðursgestir voru Óla... Meira
Lífið 19. maí 2013 13:00

Stórfurðulegir skór

Það voru margir sem ráku upp stór augu þegar þúsundþjalasmiðurinn Julianne Hough rölti í gegnum LAX-flugvöll á föstudaginn. Meira
Lífið 19. maí 2013 12:00

Ólympíuhafi í það heilaga

Jessica Ennis, Ólympíumeistarinn í sjöþraut, brosti sínu blíðasta um helgina þegar hún gekk að eiga unnusta sinn Andy Hill í St. Michael and All Angels-kirkjunni í Derbyshire á Englandi. Meira
Lífið 19. maí 2013 11:30

Nýr skemmtistaður opnar á Hverfisgötu

Glænýr skemmtistaður sem ber heitið Reykjavik Beats opnaði á Hverfisgötu 46 á föstudaginn. Meira
Lífið 19. maí 2013 11:00

Fyndin og kynþokkafull

Kristen Wiig hefur sýnt það og sannað í sjónvarpsþáttunum Saturday Night Live að hún er ein fyndnasta kona heims. Hún er einnig afar kynþokkafull eins og sést í nýjasta hefti tímaritsins Harper's Baza... Meira
Lífið 19. maí 2013 10:00

Já, þetta er fleginn kjóll!

Leikkonan Amy Adams var í ansi flegnum kjól á setti myndarinnar American Hustle fyrir helgi. Meira
Lífið 19. maí 2013 09:45

"Ég er bara mjög ánægður"

"Ég er bara mjög ánægður," segir Eyþór Ingi Gunnlaugsson eftir úrslitin í Eurovision í gærkvöldi í meðfylgjandi viðtali sem tekið var við hann. Meira
Lífið 19. maí 2013 09:00

Þeir hræktu framan í mig

Leikarinn Zach Galifianakis hefur slegið rækilega í gegn í Hangover-myndunum. Hann þarf sjálfur ekki að hafa áhyggjur af timburmönnum þar sem hann hætti að drekka fyrir stuttu. Meira
Lífið 19. maí 2013 17:00

Hver er þessi Peter?

Felix Bergssyni var tíðrætt um vin sinn Peter í lýsingum sínum af Eurovision í gær. En hver er maðurinn? Meira
Lífið 18. maí 2013 17:45

Lokaorð Eyþórs til þjóðarinnar fyrir kvöldið

Eyþór Ingi Gunnlaugsson syngur brot úr laginu Ég á líf til þjóðarinnar í myndskeiðinu. Meira
Lífið 18. maí 2013 17:45

Greinilega ekkert stressaðir fyrir kvöldið

Það mætti halda að Pétur Örn Guðmundsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Örlygur Smári séu í nettu kæruleysiskasti þegar þetta viðtal er tekið. Meira
Lífið 18. maí 2013 17:30

Eurovisionhópurinn í góðum fíling á leið í höllina

Það fer ekki á milli mála að stemmarinn er mjög góður hjá Íslendingunum í Malmö. Meira
Lífið 18. maí 2013 17:00

Táraðist yfir kommentakerfunum

Enginn þekkir mann betur en eiginkonan og haft er fyrir satt að það megi ráða í innræti manna af framkomu þeirra við fjölskyldu sína. Samkvæmt því þarf þjóðin ekki að kvíða forsætisráðherratíð Sigmund... Meira
Lífið 18. maí 2013 13:30

Eyþór klæddist hvíta jakkanum

Eyþór Ingi Gunnlaugsson setti inn þessa mynd af sér á Facebook í hádeginu þegar hann var nýbúinn að ganga um í höllina í Malmö með eftirfarandi skilaboðum á ensku: Meira
Lífið 18. maí 2013 13:00

Segir nei við lýtaaðgerðum

Christy Turlington er af mörgum talin hin eina, sanna ofurfyrirsæta. Hún hefur átt góðu gengi að fagna síðan hún byrjaði kornung í bransanum en í dag er hún 44ra ára. Meira
Lífið 18. maí 2013 12:00

Klárlega kjóll kvöldsins

Aðþrengda eiginkonan Eva Longoria lét svo sannarlega taka eftir sér á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gærkvöldi. Meira
Lífið 18. maí 2013 11:00

Erfitt að gera upp á milli þessara tveggja

Leikkonan Jennifer Aniston og ofurfyrirsætan Kate Moss eru meðal fegurstu kvenna heims. Meira
Lífið 18. maí 2013 10:00

Poppstjarna í bílslysi

Poppstjarnan George Michael slasaðist lítillega þegar hann lenti í bílslysi í London á fimmtudag. Meira
Lífið 18. maí 2013 09:00

Finnst Rihanna kynþokkafyllst

Ungstirnið Miley Cyrus var nýlega valin heitasta kona heims af tímaritinu Maxim. Meira
Lífið 18. maí 2013 22:00

Vill fyndna kærustu

Leikarinn Chris Pine fer með hlutverk í kvikmyndinni Star Trek Into Darkness. Hann var nýverið gestur í spjallþættinum Ellen DeGeneres og var þá inntur eftir því hvernig konu hann heillaðist helst af. Meira

Tarot

  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Lífið - Yfir / Lífið / Þykir vænst um fyrstu Edduna
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000