Lífið

Þvottabjörninn Pumpkin heldur að hún sé hundur

Bjarki Ármannsson skrifar
Pumpkin og hundarnir Toffee og Oreo kunna að hafa það gott.
Pumpkin og hundarnir Toffee og Oreo kunna að hafa það gott. Myndir/Instagram-síða Pumpkin
Þvottabjörninn Pumpkin hefur slegið rækilega í gegn á samskiptamiðlum undanfarna daga. Pumpkin býr í borginni Nassau á Bahama-eyjum hjá Rosie Kemp og dóttur hennar, sem fundu Pumpkin særða og umkomulausa og ákváðu að taka hana að sér.

„Við náðum strax öll vel saman,“ hefur vefmiðillinn Bored Panda eftir Kemp. „Hún eltir mig og hundana okkar tvo hvert sem við förum. Hún heldur núna að hún sé hundur, hún leikur sér við þá, fer í gamnislag en veit líka hvenær hún á að hætta.“

Pumpkin er komin með Facebook-síðu, Instagram-síðu og Twitter-aðgang þar sem Kemp deilir reglulega myndum af þessu stórskemmtilega gæludýri. Nokkrar góðar fylgja með þessari frétt hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×