Handbolti

Þvílíkur styrkur að klára þetta

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron Dagur Pálsson skoraði níu mörk þegar Grótta vann góðan sigur á Íslandsmeisturum Hauka, 27-29, á laugardaginn.

Sigurinn var afar mikilvægur fyrir Gróttu í botnbaráttunni/baráttunni um sæti í úrslitakeppninni en liðið er í 7. sæti Olís-deildar karla með 18 stig, einu stigi frá fall­sæti þegar fimm umferðir eru eftir.

Haukar voru með frumkvæðið í fyrri hálfleik og náðu góðu forskoti. En þökk sé tveimur mörkum frá Aroni Degi undir lok fyrri hálfleiks var munurinn í hálfleik aðeins fjögur mörk, 18-14. Seltirningar sýndu svo mikinn styrk í seinni hálfleik og náðu að landa sigrinum.

„Þeir náðu 6-7 marka forskoti um miðjan fyrri hálfleik og þetta var orðið svart. En fjögur mörk í hálfleik var ekkert hræðilegt og við jöfnuðum eiginlega strax í seinni hálfleik. Síðan var þetta hörkuleikur allt til enda,“ sagði Aron Dagur sem hefur skorað 66 mörk í 18 deildarleikjum á tímabilinu.

„Við höfum oft verið í jöfnum leikjum í vetur og tapað þeim. En við sýndum þvílíkan styrk að klára þetta. Varnarleikurinn var frábær í seinni hálfleik og markvarslan var góð allan leikinn. Síðan kláruðum við sóknirnar okkar miklu betur.“

Grótta byrjaði tímabilið af krafti og fékk sjö stig út úr fyrstu fjórum leikjunum. En átta af næstu 10 leikjum töpuðust og staðan var ekkert sérstaklega góð. Seltirningar hafa hins vegar verið á ágætis skriði eftir áramót; unnið þrjá leiki, gert eitt jafntefli og tapað tveimur leikjum.

„Það urðu miklar breytingar á liðinu frá síðasta tímabili og við fengum nánast nýja útilínu fyrir utan mig. Ég held að menn hafi bara verið að læra hver á annan en núna er þetta allt vonandi að smella,“ sagði Aron Dagur. Að hans sögn var markmið Gróttu að vera á svipuðum stað og í fyrra en þá lenti liðið í 5. sæti Olís-deildarinnar.

Aron Dagur er hluti af U-21 árs liði Íslands sem keppir á HM í Alsír í sumar. Miklar væntingar eru gerðar til strákanna en þessi sami hópur vann til bronsverðlauna á HM U-19 ára fyrir tveimur árum. Aron Dagur segir að íslenska liðið setji stefnuna á að vinna til verðlauna í sumar.

„Þetta er stórt tækifæri fyrir alla sem eru í liðinu. Við ætlum að vinna til verðlauna og vonandi verður réttur litur á þeim. Það hentar okkur vel að vera með háleit markmið,“ sagði Aron Dagur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×