Lífið

Þutu um götur Sao Paolo

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögreglan í Sao Paolo í Brasilíu komst í hann krappann í æsispennandi eltingaleik á mótorhjólum um götur borgarinnar. Myndbandið var birt á Liveleak í gær og þar segir að lögreglan hafi verið á eftir meintum þjófi.

Þeir aka um götur Sao Paolo á miklum hraða og á móti umferð, en þjófurinn freistar lukkunni ansi oft. Eltingaleikurinn minnir hvað helst á atriði úr hasarmynd.

Vert er að benda áhorfendum á að mikil læti eru í myndbandinu og væri mögulega betra að lækka aðeins áður en það er spilað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×