Innlent

Þúsundir sóttu útifundinn: „Stöðvum blóðbaðið“

Bjarki Ármannsson skrifar
Sjö hundruð manns lögðust niður á Arnarhóli til að setja í samhengi fjölda þeirra látnu.
Sjö hundruð manns lögðust niður á Arnarhóli til að setja í samhengi fjölda þeirra látnu. Vísir/Daníel
Óhætt er að segja að fjölmennt hafi verið á útifundi félagsins Ísland-Palestína á Ingólfstorgi í Reykjavík í gær. Nokkur þúsund manns lögðu leið sína á fundinn til að mótmæla framferði Ísraelsmanna á Gasasvæðinu undanfarnar vikur og til að sýna samstöðu með Palestínumönnum.

Fundurinn hófst á stuttri þögn til að minnast þeirra tæplega sjö hundruð sem látist hafa í árásum á Gasasvæðið síðustu tvær vikur. Ræðumaður dagsins var Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sem sparaði ekki stóru orðin í gagnrýni sinni á loftárásir Ísraelsmanna.

„Við eigum að taka afdráttarlausa afstöðu gegn ofbeldi gegn saklausu fólki, alltaf og alls staðar,“ sagði Dagur við mikið lófatak viðstaddra.

Stuttu áður en fundurinn hófst var greint frá því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefði sent starfsbróður sínum í Ísrael, Benjamín Netanjahú, bréf þar sem hann fordæmir árásir og ofbeldi á báða bóga og kallar eftir tafarlausu vopnahléi. Sveinn Rúnar Hauksson, formaður Íslands-Palestínu og fundarstjóri, flutti fréttir af þessu á Ingólfstorgi og sagði að fundurinn hefði þannig haft áhrif áður en hann hófst.

Sjá mátti söfnunarbauka víða á torginu en Ísland-Palestína stendur um þessar mundir fyrir neyðarsöfnun fyrir íbúa Gasasvæðisins. Þess má geta að félagið tekur við frjálsum framlögum á reikning sinn, 542-26-6990 kt. 520188-1349.

Jóhannes Þór Skúlason, lengst til vinstri, tók við ályktun fundarins fyrir hönd forsætisráðherra.Vísir/Daníel
Sjö hundruð lögðust á Arnarhól

Leikkonan Þóra Karítas Árnadóttir flutti ljóðið Slysaskot í Palestínu eftir Kristján frá Djúpalæk og nýstofnaði kórinn Vox Palestína söng lagið Þú veist í hjarta þér eftir Þorstein Valdimarsson. Fundi lauk svo á því að viðstaddir, sem skiptu þúsundum, hrópuðu slagorð á borð við „Frjáls Palestína“ og „Stöðvum blóðbaðið“.

Að fundi loknum gengu fundargestir saman að Stjórnarráðinu. Þar var Jóhannesi Þór Skúlasyni, aðstoðarmanni forsætisráðherra, afhent ályktun fundarins. Þá lögðust sjö hundruð manns niður á Arnarhóli til að setja í samhengi fjölda þeirra sem fallið hafa í árásunum.

Gangan frá Ingólfstorgi að Stjórnarráðinu var vægast sagt fjölmenn.Vísir/Daníel
Hilmar Örn Agnarsson stjórnaði Vox Palestína.Vísir/Daníel
Fundargestir hlýddu á ljóðið Slysaskot í Palestínu.Vísir/Daníel

Tengdar fréttir

Mesta mannfall á Gaza frá því átökin hófust

87 Palestínumenn hafa fallið í hörðum átökum við Ísraelsher á svæði við landamærin að Ísrael. Þá féllu 13 ísraelskir hermenn í átökunum en þetta er mesta mannfall sem orðið hefur á einum sólarhring frá því átökin hófust fyrir tæpum tveimur vikum.

Segir Ísraela fremja þjóðarmorð á Gasa

Mustafa Barghouti, læknir sem hlotið hefur tilnefningu til friðarverðlauna Nóbels, segir ástandið á Gasa skelfilegt og kallar eftir efnahagsþvingunum gegn Ísrael.

Forsætisráðherra fordæmir ofbeldi á Gaza

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sendi í dag forsætisráðherra Ísraels bréf þar sem komið er á framfæri alvarlegum áhyggjum af stöðu mála á Gaza.

Fjöldi látinna eykst og eykst á Gasa

Fjöldi látinna í loftárásum Ísraelshers á Gasaströndina síðustu klukkustundirnar heldur áfram að hækka. Á sama tíma fer eldflaugaárásum herskárra Palestínumanna fjölgandi og ná flaugarnar sífellt lengra inn í landið.

Tvöfalt fleiri á vergangi á Gaza

Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hyggst miðla málum í deilunni á Gasa en líkur á vopnahléi eru ekki taldar miklar.

Innrás Ísraelshers hafin á Gaza

sraelsmenn hafa hafið innrás á Gaza-ströndina og her þeirra fram af landi, sjó og úr lofti. Eitt helsta markmið innrásarinnar er að eyðileggja jarðgöng sem liðsmenn Hamas hafa notað til að komast inn í Ísrael.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×