Viðskipti innlent

Þúsundir skipta út jólatrjám fyrir strandlíf

Sæunn Gísladóttir skrifar
Langvinsælast er að fljúga suður og skella sér á ströndina yfir jólin, Tenerife er einn vinsælasti áfangastaðurinn.
Langvinsælast er að fljúga suður og skella sér á ströndina yfir jólin, Tenerife er einn vinsælasti áfangastaðurinn. Vísir/Getty
Þúsundir Íslendinga hafa ákveðið að verja jólunum utanlands og hefur þeim fjölgað milli ára í takt við almenna fjölgun í ferðum Íslendinga erlendis. Vinsælast er að fara á sólarströndina á Kanaríeyjum eða Tenerife, en einnig eru einhverjir á skíðum yfir hátíðirnar.

Með fjórum vinsælum ferðaskrifstofum fara 2.500 Íslendingar erlendis um jólin, aukning er milli ára hjá þeim öllum. Átta hundruð manns fara með Heimsferðum til Tenerife og Gran Canaria, að sögn Tómasar J. Gestssonar, framkvæmdastjóra Heimsferða. Fimm hundruð manns fara til Tenerife og Kanaríeyja og fimmtíu manns renna sér á skíðum hjá Vita ferðum. að sögn Guðrúnar Sigurgeirsdóttur framleiðslustjóra. Þúsund manns fara með Úrval Útsýn til Tenerife og Kanaríeyja sem er um 10 prósenta aukning milli ára að sögn Klöru Írisar Vigfúsdóttur forstöðumanns. Loks liggja hundrað og fimmtíu manns á ströndinni á Tenerife með Gaman ferðum að sögn Ingibjargar Elsu Eysteinsdóttur, forstöðumanns í sólarlandaferðum hjá Gaman ferðum.

Bæði WOW air og Icelandair buðu upp á aðventuferðir í desember og hefur ásókn í þær verið gífurleg. Icelandair var með sérstakar aðventuferðir fyrir eldri borgara en síðan almennt flug á aðventunni. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir erfitt að meta fjöldann en að óhætt sé að segja að þau greini 10-15 prósenta vöxt í aðventuferðum milli ára.

Ferðagleði Íslendinga hefur sjaldan verið jafn mikil og á þessu ári. Isavia spáir því að 450 þúsund íslenskir ferðamenn muni fara um Keflavíkurflugvöll á árinu 2015, sem er 12,6 prósenta aukning milli ára. Spáð er að heildarfjöldi íslenskra brottfararfarþega verði um 495 þúsund á árinu 2016. Ef sú spá rætist verður ferðamet Íslendinga frá árinu 2007 slegið á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×