Innlent

Þúsund hjóla hringveginn

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Fjöldi hjólreiðarmanna tók þátt í fyrra
Fjöldi hjólreiðarmanna tók þátt í fyrra Fréttablaðið / Daníel
Um þúsund manns hafa skráð sig til leiks í WOW Cyclothon sem fer fram dagana 23. til 26. júní. Það er metþátttaka. Markmið leikanna er að hjóla til styrktar Batamiðstöð á geðsviði Landspítalans á Kleppi.

Þátttakendur hjóla hringinn í kringum Ísland, um Hvalfjörð og yfir Öxi á 72 klukkustundum. Í fyrra söfnuðust 15 milljónir króna til tækjakaupa fyrir bæklunarskurðdeild Landspítalans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×