Innlent

Þurfum við að óttast Íslam?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Markmiðið með málþinginu er að hvetja til málefnalegrar og gagnrýnnar umræðu um íslam á Íslandi.
Markmiðið með málþinginu er að hvetja til málefnalegrar og gagnrýnnar umræðu um íslam á Íslandi.
Siðmennt, félag siðrænna húmanista boðar til málþings um íslam laugardaginn 29. nóvember næstkomandi frá klukkan 11-13 á Hótel Sögu.

Markmiðið með málþinginu er að hvetja til málefnalegrar og gagnrýnnar umræðu um íslam á Íslandi. Yfirskrift málþingsins er: Þurfum við að óttast Íslam?

Fram kemur í tilkynningu frá Siðmennt að allir sem hafa áhuga á málefninu séu boðnir velkomnir og að aðgangur verði ókeypis.

Fjórir frummælendur halda stutt erindi (10 til 12 mínútur) og síðan verða pallborðsumræður og spurningar úr sal bornar upp.

Frummælendur: 

1.
Sigurður Hólm Gunnarsson - iðjuþjálfi og stjórnarmaður í Siðmennt

Erindi: Trúfrelsi, veraldlegt samfélag og íslam

2. Ibrahim Sverrir Agnarsson - formaður Félags múslima á Íslandi

Erindi: Hugmyndafræði íslam og öfgahópar

3. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir - doktorsnemi í mannfræði

Erindi: Gagnrýni á íslam á tímum íslamófóbíu

4. Helgi Hrafn Gunnarsson - þingmaður

Erindi: Óttafull viðbrögð og lýðræðisleg ábyrgð

Fundastjórn:

Steinunn Rögnvaldsdóttir - félags- og kynjafræðingur og stjórnarmaður í Siðmennt




Fleiri fréttir

Sjá meira


×