Þurftu þúsund manns í 300 störf 31. ágúst 2005 00:01 "
Við höfum tekið það saman og á síðasta ári vorum við með 1036 starsfmenn sem er nokkuð mikið miðað við það að við höfum rétt um þrjú hundruð stöðugildi," segir Sigríður Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi. Það þýðir að Svæðisskrifstofan þarf að meðaltali rúmlega þrjá menn til að fylla hvert stöðugildi. Sigríður og Sæunn Njálsdóttir, forstöðumaður á sambýli fyrir fjölfatlaða, segja að mannekla hafi þegar sett mark sitt á starfsemina og komið niður á lífsgæðum fatlaðra en nú vantar um það bil þrjátíu og sex starfsmenn á sambýli og starfsstöðvar fatlaðra á Reykjanesi. Sæunn segir að hún hafi leitað eftir aðstoð aðstandenda vegna manneklunnar. "Það er ekki svo einfalt mál því það getur þurft að flytja heilu sjúkrarúmin og hjálpartækin með einstaklingnum og svo hefur þetta eðlilega mikil áhrif á líf aðstandendanna," segir hún. Hún segir enn fremur að ýmis félagsleg þjónusta við skjólstæðinga sína falli niður meðan staðan er svona. "Starfið snýst að mestu um það að sinna frumþörfum og svo bíður fólkið bara því ekki er nægur mannskapur til að sinna félagslegu þáttunum sem er mjög slæmt því okkar starf felst einnig í því að koma fötluðum út í samfélagið en það starf situr á hakanum þegar svona er," segir Sæunn. Ýmsar leiðir eru reyndar til úrbóta í manneklunni. Til dæmis segir Sigríður að til umræðu hafi komið að lækka lágmarksaldur þeirra sem ráðnir eru til starfa úr 20 árum niður í 19. Mikill skortur er á fagmenntuðu fólki í þessum málaflokki að sögn Sigríðar en hún segir að störfum við umönnun fatlaðs fólks hafi fjölgað síðustu ár en ekki hafi verið hugað að því að mennta fólk til starfanna að sama skapi. "Það er ekki svo að fólk vilji ekki mennta sig til þessara starfa," segir Sigríður og bendir á að færri komist að en vilji til þess að læra þroskaþjálfun í Kennaraháskólanum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira