Bíó og sjónvarp

Þurftu að flytja inn snjó til Íslands

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Stanley Tucci, Sofie Grabol og Christopher Eccleston, nokkrir af aðalleikurum Fortitude.
Stanley Tucci, Sofie Grabol og Christopher Eccleston, nokkrir af aðalleikurum Fortitude.
Framleiðendur þáttanna Fortitude þurftu að flytja inn snjó til Íslands þegar þættirnir voru að stórum hluta teknir upp á Reyðarfirði og Eskifirði fyrr á þessu ári.

Patrick Spence, einn framleiðandanna, segir í samtali við breska blaðið The Independent að framleiðendurnir hafi verið stærsti snjóinnflytjandi í heimi árið 2014.

Hann segir að í fyrsta skipti í fjöldamörg ár hafi ekki verið mikill snjór fyrir austan þær sex vikur sem tökur á þáttunum fóru fram. Það hafi því þurft að dreifa gervisnjó ítrekað yfir bæinn og fjöllin en ákvörðun um tökustað var tekin út frá tölfræði um hvar líklegast væri hægt að ganga að alvöru snjó vísum.

Þættirnir, sem eru í anda Twin Peaks, fjalla um smábæinn Fortitude sem er talinn vera einn öruggasti bær í heimi þangað til vísindamaður í bænum er myrtur og allir liggja undir grun. Glæpurinn setur allt á annan endann í Fortitude og enginn er óhultur.

Fyrsti þátturinn verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sky Atlantic í lok janúar en með aðalhlutverk fara Michael Gambon, Sofie Grabol, Christopher Eccleston og Stanley Tucci. 

Hér að neðan má sjá stiklu úr þáttunum.


Tengdar fréttir

Fortitude sýnd um allan heim

Sjónvarpsserían er talin ein af heitustu söluvörunum á kaupráðstefnunni MIPCOM í Frakklandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×