Golf

Þurftu að færa brúðkaupið svo Obama kæmist í golf

Obama í golfi.
Obama í golfi. vísir/getty
Par í bandaríska hernum þurfti að færa brúðkaup sitt á elleftu stundu svo Bandaríkjaforseti gæti spilað golf.

Parið ætlaði að gifta sig á 16. holu golfvallar hersins á Hawaii en það reyndist ekki unnt þar sem Barack Obama þurfti að komast í golf.

Forsetinn fer iðulega í frí til Hawaii og þá spilar hann golf á vellinum. Honum var ekki kunnugt um að spilamennska hans hefði skemmt fyrir herparinu.

Hvorki forsetanum né hans starfsliði var sagt frá brúðkaupinu heldur tók framkvæmdastjóri golfvallarins þessa ákvörðun.

Obama var svo miður sín að hann hringdi í brúðina. Bað hana afsökunar og óskaði henni til hamingju með giftinguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×