Þurfti að loka fyrir rafmagnið Svavar Hávarðsson skrifar 16. maí 2013 07:00 Tekið var á móti rúmlega 19.000 tonnum af kolmunna á Vopnafirði. mynd/hb grandi
Rétt náðist að bræða síðasta kolmunnatonnið á Vopnafirði áður en verksmiðja HB Granda á staðnum var svipt orku til bræðslunnar. „Við höfum keyrt fiskimjölsverksmiðjuna á svokallaðri ótryggri raforku en aldrei lent í teljandi vandræðum fyrr en nú. Við fengum að halda rafmagninu fram yfir hádegi síðastliðinn mánudag og það munaði ekki miklu að við næðum að bræða síðasta kolmunnaaflann um svipað leyti,“ segir Sveinbjörn Sigmundsson, verksmiðjustjóri HB Granda á Vopnafirði, í frétt á vef fyrirtækisins. Þar segir að vatnsbúskapur í uppistöðulónum virkjana á Norðurlandi sé mun lakari en menn hafi átt að venjast undanfarin ár og því hefur þurft að grípa til skerðingar á raforku til stóriðju og fyrirtækja sem verið hafa með samninga um kaup á ótryggri raforku. Að sögn Sveinbjörns er þetta í fyrsta sinn sem raforkuskortur bitnar að einhverju marki á fiskmjölsverksmiðjum á Norðaustur- og Austurlandi. Tekið var á móti rúmlega 19.000 tonnum af kolmunna á Vopnafirði á þeim rúma mánuði sem veiðarnar stóðu yfir en tvívegis lönduðu skip HB Granda afla í Færeyjum vegna veðurs.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira