Viðskipti innlent

Þurfa að greiða Kortaþjónustunni 250 milljónir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jóhannes Ingi Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar, og Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor.
Jóhannes Ingi Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar, og Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor.
Sátt hefur tekist milli Valitor, Borgunar og Greiðsluveitunnar annars vegar og Kortaþjónustunnar hins vegar um bætur til Kortaþjónustunnar vegna tjóns þess síðastnefnda af völdum brota á samkeppnislögum á árunum 2002-2006. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Valitor.

Hafa málsaðilar sæst á 250 milljóna króna bætur. Sátt var gerð við Samkeppniseftirlitið vegna þessara brota árið 2008 af hálfu Greiðslumiðlunar hf. (nú Valitor), Kreditkorta hf. (nú Borgunar) og Fjölgreiðslumiðlunar hf. (nú Greiðsluveitunnar) en á umræddum tíma, árin 2002-2006, var Kortaþjónustan umboðsskrifstofa  fyrir danska stórfyrirtækið Teller (áður PBS) hér á landi.

„Sáttin er hluti hluti af uppgjöri við fortíðina og mikilvægt að þessi kafli sé að baki. Miklar breytingar standa nú yfir á íslenska greiðslukortakerfinu. Nýr grunnur heilbrigðrar samkeppni hefur verið lagður með skýrum og réttlátari leikreglum sem eiga að koma öllum til góða, söluaðilum, kortafyrirtækjum og korthöfum. Valitor vinnur náið með samkeppnisyfirvöldum að framkvæmd þessara breytinga og við horfum bjartsýn fram á veg,“ segir Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor.     






Fleiri fréttir

Sjá meira


×