Þunglyndi eykst í kreppunni 30. apríl 2009 19:23 Haukur Sigurðsson sálfræðingur segir brýnt að stórefla fyrirbyggjandi sálfræði- og félagsþjónustu.
Kreppan hefur leitt til þess að tilfellum um alvarlegt þunglyndi hefur fjölgað. Einnig má merkja aukningu í sjálfsvígshugsunum hjá þeim sem verst eru haldnir, segir sálfræðingur, sem telur brýnt að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða. Haukur Sigurðsson sálfræðingur segir að síðan kreppan skall á hafi orðið vart við aukningu í eftirspurn á þjónustu. „Og þá erum við aðallega að tala um kvíðavandamál og þunglyndisvandamál," segir Haukur. Almennt er vandinn ekki á alvarlegu stigi, en þó eru dæmi um annað. „Jú, ég er að sjá aukningu á þunglyndi sem er af alvarlega taginu þar sem vonleysi og félagsleg einangrun er orðin mikil," segir Haukur. Hann segir að tengt þunglyndinu megi merkja aukningu í sjálfvígshugsunum og þess háttar. Rannsóknir sýna að vanlíðan fullorðinna hefur mikil áhrif á heimilislífið og uppeldi barna. Finnar komust að því vanræksla barna á kreppuárunum þar í landi leiddi til þess að fjöldi fólks þurfti að glíma við þunglyndi á fullorðinsárum og margfaldaðist fjöldi ungra örorkuþega um áratug eftir harðindatímann. Með þetta í huga telur Haukur brýnt að stórefla fyrirbyggjandi sálfræði- og félagsþjónustu bæði við börn og fullorðna. Mikilvægt sé einnig að ríkisvaldið taki ákvörðun um að greiða niður þjónustu sálfræðinga á stofu. „Og ef við ættum að setja eitthvað í fyrsta sæti ættum við að styðja við foreldrana. Því það kemur ekkert í staðinn fyrir heilbrigt og eðlilegt heimilislíf og gott uppeldi," segir Haukur.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vægari úrræði ættu að koma á undan vistun fjölskyldna í brottfararstöð Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira