Sport

Þungavigtarmenn aðstoða ÍSÍ vegna afreksmála

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ráðherrarnir taka hér Víkingaklappið eftir undirritunina í sumar.
Ráðherrarnir taka hér Víkingaklappið eftir undirritunina í sumar. Vísir/ÓskarÓ
Íþrótta- og Ólympíusamand Íslands, ÍSÍ, hefur skipað vinnuhóp sem mun hafa það verkefni að gera tillögur um breytingar á reglum Afrekssjóðs ÍSÍ fyrir framkvæmdastjórnar sambandsins.

Þetta kom fram í tilkynningu sem ÍSÍ sendi fjölmiðlum fyrr í dag.

Ríkisyfirvöld samþykktu í sumar stóraukin fjárframlög til afreksíþrótta á Íslandi en mun það hækka í 400 milljónir króna á næstu þremur árum. Um fjórföldun er að ræða frá núverandi framlegi ríkisvaldsins.

Sjá einnig: Afrekssjóður fjórfaldast á næstu þremur árum

Stefán Konráðsson, formaður Íþróttanefndar ríkisins, er formaður vinnuhópsins en í honum eru einnig Þórdís Lilja Gíslasdóttir og Friðrik Einarsson.

Vinnuhópurinn hefur nú þegar skipað viðhorfshóp en í honum eru margir af þekktustu þjálfurum landsins, þeirra á meðal Guðmundur Guðmundsson, Dagur Sigurðsson, Þórir Hergeirsson, Vésteinn Hafsteinsson, Gunnar Páll Jóakimsson, Eyleifur Jóhannesson, Elísabet Gunnarsdóttir og Vala Flosadóttir.

Tilkynningu ÍSÍ í heild sinni má lesa hér fyrir neðan.

„ÍSÍ skipar vinnuhóp og leitar til alþjóðlegra fagmanna vegna afreksmála

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur skipað þriggja manna vinnuhóp til að gera tillögur til framkvæmdastjórnar ÍSÍ um breytingar á reglum Afrekssjóðs ÍSÍ  í kjölfar undirritunar samnings um stóraukin fjárframlög ríkisvaldsins til sjóðsins. Vinnuhópurinn skal gera tillögur um breytingar á reglum Afrekssjóðs ÍSÍ með það fyrir augum að hámarka nýtingu þess fjármagns til eflingar afreksstarfs og árangurs þess í framtíðinni. Stefnt er að því að vinnuhópurinn skili áfangaskýrslu til Formannafundar ÍSÍ 11. nóvember n.k. og endanlegum tillögum sínum til framkvæmdastjórnar ÍSÍ fyrir 1. mars n.k.

Vinnuhópinn skipa Stefán Konráðsson formaður Íþróttanefndar ríkisins og fyrrverandi framkvæmdastjóri ÍSÍ, dr. Þórdís Lilja Gísladóttir nýdoktor HÍ og verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg og Friðrik Einarsson fyrrverandi formaður Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ og fyrrverandi formaður Skíðasambands Íslands.

Vinnuhópurinn hefur hist á sínum fyrsta fundi og leggur áherslu á að sækja hugmyndir og þekkingu til þeirra aðila sem hafa getið sér gott orð fyrir fagmennsku í störfum sínum og hafa starfað í alþjóðlegu afreksumhverfi hjá þeim þjóðum sem við berum okkur oft saman við auk erlendra sérfræðinga til ráðgjafar og aðstoðar. Viðhorfshópinn skipa: Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari Danmerkur í handknattleik, Vésteinn Hafsteinsson alþjóðlegur frjálsíþróttaþjálfari, Þórir Hergeirsson landsliðsþjálfari Noregs í handknattleik, Guðmundur Þ. Harðarson fyrrverandi sundþjálfari, Elísabet Gunnarsdóttir knattspyrnuþjálfari í Noregi, Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari í knattspyrnu, Dagur Sigurðsson landsliðsþjálfari Þýskalands í handknattleik, Vala Flosadóttir frjálsíþróttaþjálfari í Svíþjóð,  Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari í golfi, Eyleifur Jóhannesson sundþjálfari í Danmörku, Kristinn Björnsson skíðaþjálfari í Noregi, Bjarni Friðriksson júdóþjálfari, Hrannar Hólm körfuknattleiksþjálfari, Gunnar Páll Jóakimsson frjálsíþróttaþjálfari og Erlingur Jóhannsson prófessor við Háskóla Íslands. Þá mun teymi sérfræðinga hjá Team Danmark og Olympiatoppen í Noregi verða vinnuhópnum til aðstoðar. Auk þess mun vinnuhópurinn leita til fjölmargra aðila innan íþróttahreyfingarinnar á Íslandi, s.s. framkvæmdastjórnar ÍSÍ, fulltrúa sérsambanda ÍSÍ, stjórnar Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ og stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ varðandi viðhorf og athugasemdir sem tengjast afreksíþróttastarfi og úthlutunum afreksstyrkja íþróttahreyfingarinnar.

Starfsmaður hópsins er Andri Stefánsson sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ. “


Tengdar fréttir

Íslenskar íþróttir öðlast nýtt líf

Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands undirrituðu í gær tímamótasamning um að fjórfalda fjárframlag ríkisins til afreksíþrótta á Íslandi næstu þrjú árin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×