Golf

Þú vinnur ekki Ryder Cup með munninum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sergio Garcia heilsar upp á golfbolinn í gær.
Sergio Garcia heilsar upp á golfbolinn í gær. vísir/getty
Bandarískir fjölmiðlar hafa verið staðnir að því að gera lítið úr Ryder Cup-liði Evrópu og það fer ekki vel í Spánverjann Sergio Garcia.

Það verða alls sex nýliðar í Ryder-liði Evrópu og hinn þekkti bandaríski golflýsir, Johnny Miller, sagði að þetta væri lélegasta lið sem Evrópa hefði mætt með í áraraðir.

„Þú vinnur ekki Ryder Cup með munninum. Mótið vinnst á vellinum. Við munum sjá hvort liðið er betra,“ sagði Garcia herskár og þakkaði um leið fyrir þessa hvatningu.

„Þið vitið hvað er sagt um skoðanir. Við höfum allir eina slíka.“

Evrópa hefur ekki tapað síðan 2008 og Garcia hefur unnið fimm sinnum í þau átta skipti sem hann hefur tekið þátt.

Ryder Cup hefst í hádeginu á föstudag og verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×