Skoðun

Þú bjargaðir lífi mínu. Bjargaðu núna lífi annarra!

Moses Akatugba skrifar
Kæri vinur,

Ég heiti Moses Akatugba. Í tíu ár sat ég í fangelsi í Nígeríu. Ég var handtekinn, pyndaður og fangelsaður þegar ég var aðeins 16 ára gamall. Ég var dæmdur til dauða. Lögreglumenn börðu mig með sveðjum og prikum. Ég var bundinn á fótum og látinn hanga á hvolfi svo tímunum skipti. Neglur voru dregnar af fingrum mér og tám. Sársaukinn sem ég upplifði var ólýsanlegur.

Í maí 2015 var aftaka mín stöðvuð og ég varð frjáls maður. Bréf ykkar frá Bréfamaraþoni Amnesty International björguðu lífi mínu. Þakka ykkur fyrir!

Vinsamlegast hjálpið öðrum sem sætt hafa mannréttindabrotum eins og ég. Takið þátt í Bréfamaraþoninu 2016. Ég er sönnun þess að Bréfamaraþonið virkar í reynd. Án þeirra þúsunda bréfa og undirskrifta sem send voru til stuðnings máli mínu hefði ég mögulega aldrei hlotið frelsi.

Þegar ég sat í fangelsi heyrði ég að fólk á Íslandi væri að berjast fyrir frelsi mínu. Ég vissi þó ekki fyrr en síðar, þegar ég heimsótti Ísland, að þið hefðuð verið svona mörg sem gripuð til aðgerða vegna mín. Aðgerðasinnar eins og þú eru hetjurnar mínar. Þú hefur blásið mér í brjóst löngunina til að gerast aðgerðasinni sjálfur – að berjast fyrir aðra.

Viltu ganga til liðs við mig? Viltu berjast fyrir frelsi og réttlæti annarra með þátttöku í Bréfamaraþoni Amnesty í ár? Líf fólks er í húfi og þú getur hjálpað með aðgerðum þínum í Bréfamaraþoninu.

Krefðu Obama, forseta Bandaríkjanna, um að láta það verða eitt sitt síðasta verk að veita mannréttindahetju sem afhjúpaði geðþóttaeftirlit stjórnvalda, sakaruppgjöf. Krefstu þess að stjórnvöld í Malaví verndi albínóa gegn morðum. Krefðu stjórnvöld í Íran um að láta unga konu sem er samviskufangi lausa úr haldi og veita henni þá bráðnauðsynlegu læknismeðferð sem hún þarf á að halda en hún er við það að missa sjónina.

Um er að ræða einn stærsta mannréttindaviðburð í heimi sem haldinn er ár hvert í desember til að berjast fyrir málum eins og mínu. Sameinuð höfum við vald til að sigrast á óréttlæti.

Ég ætla að leggja mitt af mörkum til að hjálpa fólki sem sætir mannréttindabrotum. Ætlar þú að leggja þitt af mörkum? Aðgerðir þínar eru ekkert minna en kraftaverk! Vinsamlegast, taktu þátt í að bjarga lífi.

Farðu inn á www.amnesty.is og taktu þátt.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Er þetta eðli­legt?

Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar

Sjá meira


×