Innlent

Þrumur og eldingar á höfuðborgarsvæðinu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Talið er að þrumugangur haldi áfram fram eftir morgundeginum.
Talið er að þrumugangur haldi áfram fram eftir morgundeginum.
Eldingar sáust greinilega á höfuðborgarsvæðinu og víðar í kvöld en talið er að þrumugangur haldi áfram fram eftir morgundeginum. Að sögn veðurfræðings á Veðurstofu Íslands hefur verið umtalsvert um eldingar suður og vestur af landinu síðasta sólarhring, þónokkuð meira en að undanförnu. Þetta sé þó ekki óvanalegt í kuldaskilum og stafi eldingarnar af lægð sem gengur nú yfir landið og henni fylgi óstöðugt loft og háloftakuldi.

Um tíu eldingar hafa mælst sunnan- og vestanlands í kvöld, tuttugu síðasta sólarhringinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×