Þrúgandi leiðindi

Fréttablaðið Fastir pennar 18. febrúar 2012 06:00
Óli Kristján Ármannsson
Óli Kristján Ármannsson
Óli Kristján Ármannsson skrifar:
Stundum finnst manni eins og í fréttum komi vart annað en afturgöngur gamalla frétta og umræðu. Nú síðast í vikulokin gerðist það með dómi Hæstaréttar þar sem afturvirkir endurreiknaðir vextir á gjaldeyrislán voru sagðir ólöglegir.

Víst er að umræða um skuldavanda, gjaldeyrismál, Icesave og þar fram eftir götunum er fyrir löngu orðin bæði þrúgandi og leiðigjörn að margra mati, en heldur væntanlega áfram meðan mál eru ekki kláruð að fullu. Þannig getur fólk látið sig hlakka til nýrrar lotu Icesave-umræðna þegar boðaður málarekstur ESA hefst á hendur íslenska ríkinu.

Kannski eru það samt merki um einhverja örvæntingu í samfélaginu allar þær væntingar sem upp risu þegar vaxtadómur Hæstaréttar féll á miðvikudag. Virtust margir áætla um leið að hver sá sem hefði á einhverjum tímapunkti tekið erlent lán hefði dottið í lukkupott gjafavaxta og ætti væntanlega von á endurgreiðslum á stærð við meðallottóvinning, fleiri tugir milljarða væru á leiðinni til skuldara landsins.

Daginn eftir var þó komið aðeins annað hljóð á strokkinn. Ekki víst að von sé á öllum milljónunum og óljóst hversu fordæmisgefandi dómurinn sé, eða til hverra þeirra hann nái sem tekið höfðu lán í erlendri mynt. Líkast til bara þeirra sem alltaf höfðu staðið í skilum. Og hefur þá væntanlega farið um þá sem í skuldavanda sínum hlíttu misjöfnum ráðum um að hætta að borga af lánum sínum. Mikil er ábyrgð þeirra sem ráðleggja fólki þannig, að það fyrirgerir rétti sínum til leiðréttinga.

Lýðskrum virðist nefnilega vera óhjákvæmilegur fylgifiskur þessarar skuldavanda- og jafnvel efnahagsumræðu allrar, hvort sem það eru yfirlýsingar um töfralausnir á borð við einhliða upptöku erlendrar myntar, flata skuldaniðurfellingu, eða annað ámóta rugl sem með rökum er margbúið að slá út af borðinu.

Angi af slíku dúkkaði upp í umræðum um vaxtadóm Hæstaréttar þegar einstaka stjórnmálamenn fóru að tala um að ætti að rétta hlut einhverra þeirra sem tekið höfðu erlent lán, þá væri óhjákvæmilegt annað en að rétta hlut hinna sem pínast í verðtryggingarfangelsi krónulána.

Tilfellið er nefnilega að á endanum borgar alltaf einhver brúsann. Stjórnmálamenn sem vilja fella niður skuldir af íbúðalánum þurfa þá líka að svara þeirri spurningu hvaða áhrif slík aðgerð hefur á stöðu Íbúðalánasjóðs og hvaðan eigi að koma fjármunir til að styrkja hann enn frekar komi til slíkra aðgerða. Hver ætlar að mæla fyrir skattahækkunum vegna þessa?

Aðgerðin sem gagnast þeim sem skulda verðtryggð lán er að böndum sé komið á verðbólguna. Þar gætu stjórnmálamenn sem stuðla að aukinni verðbólgu með því að hækka neysluskatta strax lofað úrbótum. Þá hefur verið lýst leiðum til að koma böndum á sveiflur í gengi krónunnar með gjöldum á gjaldeyrisskiptasamninga. Hvað líður áætluninni um afnám gjaldeyrishafta? Er ekki ráð að fara að koma á þessari ábyrgu efnahagsstjórn sem þjóðin hefur, líkast til allt frá stofnun, beðið eftir?

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Þrúgandi leiðindi