Þróttur í atvinnulífinu en hagvöxtur þyrfti að vera meiri Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. júlí 2012 16:30
Mun meiri þróttur virðist vera í atvinnulífinu en spár gerðu ráð fyrir, segir Hagfræðideild Landsbanka Íslands sem gerir atvinnuleysistölur að umræðuefni í daglegum pistli. Atvinnuleysi í júní mældist 4,8% en 6,7% í júní í fyrra. Hagfræðideild Landsbankans býst við því að þær atvinnuleysistölur sem eiga eftir að koma í sumar verði í samræmi við seinustu tölur. Það er hins vegar meiri óvissa um hvað gerist í haust þegar sumarverkin í byggingariðnaði og ferðamannaiðnaði klárast. Þá kemur betur í ljós hvort vinnumarkaðurinn sé í raun að taka við sér hraðar en búist var við eða hvort það sé bara óvenju mikið að gerast þetta sumar. Hagfræðideild Landsbankans segir aftur á móti að vísbendingar um einkaneysluna fyrri helming ársins bendi til helmingi minni vaxtar en flestar opinberar þjóðhagsspár geri ráð fyrir. Því þurfi veltan á seinni helmingi ársins að aukast verulega eigi spárnar að ganga eftir. Verði það ekki raunin sé útlit fyrir að hagvöxturinn á þessu ári verði talsvert minni, að öðru óbreyttu, en spáð hefur verið. Á móti vegi að mun hraðar hafi dregið úr atvinnuleysi undanfarna tvo mánuði en reiknað hafi verið með. Ef sú þróun haldi áfram kunni að reynast innistæða fyrir kröftugri vexti einkaneyslu á seinni helmingi ársins.
Mest lesið Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Fleiri fréttir Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Sjá meira