Þrír leikmenn handknattleiksliðs Þróttar í Vogum skrópuðu í lyfjapróf eftir
bikarleik gegn Stjörnunni í gær og eiga tveggja ára keppnisbann yfir höfði
sér. Þorsteinn Gunnarsson greindi frá þessu í íþróttafréttum á Stöð 2 í kvöld.
Athygli vakti í leik Þróttar og Stjörnunnar í Garðabæ í gærkvöldi að þrír
leikmenn Þróttar hurfu úr húsi í miðjum leik. Áslaug Sigurjónsdóttir, formaður lyfjaeftirlits ÍSÍ, staðfesti við
íþróttadeildina að aðeins einn af fjórum leikmönnum Þróttar sem boðaðir voru í
lyfjapróf eftir leikinn, hefði mætt og þrír hefðu því skrópað.
Að sögn Áslaugar er farið með skróp í lyfjapróf eins og um lyfjamál sé að
ræða og eiga þremenningarnir því tveggja ára keppnisbann yfir höfði sér. Hún
segir að málið sé grafalvarlegt fyrir þessa þrjá leikmenn en lyfjaeftirlitið
vinnur að rannsókn málsins.
Lið Þróttar í Vogum saman stendur af köppum sem eru þekktari fyrir að iðka
aðrar íþróttir en handbolta enda tekur Þróttur ekki þátt í Íslandsmótinu í
handbolta heldur eingöngu bikarkeppni HSÍ.
Gunnar Helgason, sem er í forsvari fyrir Þrótt Vogum, sagðist aðeins vita
til þess að einn leikmaður hefði yfirgefið íþróttahúsið áður en leik lauk. Formaður Lyfjaeftilitsins segir að eftirlitið
geti valið hvaða íþróttamann eða konu sem er í lyfjapróf. Þess má geta að
Þróttur tapaði fyrir Stjörnunni með 32ja marka mun, 44 mörkum gegn 12.