Þrjú tilboð bárust í Sparisjóð Vestmannaeyja Höskuldur Kári Schram skrifar 27. mars 2015 18:52
Landsbankinn, Arionbanki og hópur innlendra og erlendra fjárfesta hafa hver fyrir sig lýst yfir áhuga á að hefja viðræður við stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja um kaup á sjóðnum. Stjórnin óskaði eftir tilboðum eftir að í ljós kom að sjóðurinn þyrfti að bæta eiginfjárstöðu sína um rúman milljarð. Sparisjóðurinn hefur verið á einhvers konar skilorði hjá Fjármálaeftirlitinu eftir að í ljós kom að útlánasafn hans var ekki eins gott og áður var talið. Sjóðurinn fékk frest til klukkan fjögur í dag til að bregðast við þessum aðstæðum og skila greinargerð með tillögum til úrbóta til FME. Stjórn sjóðsins óskaði meðal annars eftir kauptilboði frá Landsbankanum sem lýsti í dag yfir áhuga á að hefja viðræður þessa efnis. Þá bárust einnig tvö önnur tilboð, eitt frá Arionbanka og annað frá hópi innlendra og erlendra fjárfesta. Fjárfestarnir buðust til að koma með pening inn í sjóðinn og breyta honum í hlutafélag en Þorbjörg Inga Jónsdóttir formaður stjórnar Sparisjóðs Vestmannaeyja segir að FME hafi hafnað þeirri leið. „Þá förum við inn í þennan valkost tvö að semja við Landsbankann af því við töldum það tilboð hagstæðara fyrir stofnfjárhafa,“ segir Þorbjörg.
Mest lesið Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Viðskipti innlent Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Samstarf Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Viðskipti innlent Farsímatekjur undir væntingum Viðskipti innlent „Enda hefði hún hreinlega ekki nennt að þræta við mig endalaust“ Atvinnulíf Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Viðskipti erlent Fleiri fréttir Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Sjá meira