Þrjú silfur og fjögur í úrvalsliðum NM unglinga í körfu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. maí 2013 19:14 18 ára stelpurnar voru kátar í leikslok. Mynd/KKÍ
Íslensku unglingalandsliðin í körfubolta unnu til þrennra silfurverðlaun á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem lauk í Stokkhólmi í dag. Bæði 18 ára liðin sem og 16 ára lið karla urðu í 2. sæti á mótinu en 16 ára stelpurnar urðu að sætta sig við 4. sætið. Íslenska 16 ára landsliðið tapaði stórt á móti Dönum í úrslitaleik um Norðurlandameistaratitilinn í en íslensku strákarnir voru búnir að fara á kostum í fyrstu fjórum leikjum sínum á mótinu. Danir unnu leikinn með 19 stiga mun, 88-69. Haukamaðurinn Kári Jónsson var langstigahæstur í íslenska liðinu með 24 stig en Njarðvíkingurinn Kristinn Pálsson var með 11 stig og 8 fráköst og Halldór Hermannsson frá Þór Þorlákshöfn skoraði 10 stig. 18 ára liðin tryggðu sér aftur á móti silfrið með góðum sigrum á Dönum. Bæði liðin þurftu að vinna sína leiki til að tryggja sér annað sætið en hvorugt liðið átti möguleika á gullinu. 18 ára stelpurnar unnu sannfærandi 60-46 sigur þar sem Njarðvíkingurinn Guðlaug Björg Júlíusdóttir skoraði 14 stig, Hamarstelpan Marín Laufey Davíðsdóttir var með 13 stig og 14 fráköst og Haukastelpan Lovísa Björt Henningsdóttir skoraði 12 stig. 18 ára strákarnir unnu Dani örugglega í lokaleiknum 78-53. Stjörnumaðurinn Dagur Kár Jónsson skoraði 27 stig og Njarðvíkingurinn Maciej Baginski var með 25 stig og 10 fráköst. Ísland átti fjóra leikmenn í úrvalsliðum á Norðurlandamótinu þetta árið. Tvo leikmenn hjá sextán ára strákum, einn hjá 18 ára konum og einn hjá 18 ára körlum. Kári Jónsson úr Haukum og Kristinn Pálsson úr Njarðvík voru valdir í úrvalslið 16 ára karla. Ingunn Embla Kristínardóttir úr Keflavík, var valin í úrvalslið 18 ára kvenna og þá var Dagur Kár Jónsson úr Stjörnunni valinn í úrvalslið 18 ára karla.
Körfubolti Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Wiegman sendi kveðju til Íslands: „Gangi ykkur vel“ Fótbolti Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Sjá meira