Handbolti

Þrjú mörk frá Birnu Berg og Glassverket upp í annað sætið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Birna Berg Haraldsdóttir, landsliðskona í handbolta, og stöllur hennar í norska úrvalsdeildarliðinu Glassverket höfðu sigur á Oppsal, 29-23, í leik liðanna í kvöld.

Heimakonur voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 11-9, og juku forskoti jafnt og þétt í þeim síðari en Glassverket stýrði leiknum allan tímann.

Birna Berg skoraði þrjú mörk í fimm skotum í leiknum en hún hefur verið að spila mjög vel á tímabilinu fyrir liðið.

Glassverket komst með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar en það er með 17 stig, þremur stigum minna en topplið Larvik sem á leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×