Innlent

Þrjú líkamsárásamál

Gissur Sigurðsson skrifar
Vísir/Kolbeinn Tumi
Þrjú líkamsárásarmál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og , en ekki segir af afdrifum þolenda í þeim, í skeyti lögreglu. Fyrst var ölvuð kona handtekinn á heimili í Bryggjuhverfinu laust fyrir klukkan átta í gærkvöldi og vistuð í fangageymslum.

Skömmu síðar var karlmaður handtekinn á heimili í Kópavogi og loks var ölvaður karlmaður handtekinn í heimahúsi í vesturborginni um tíu leitið. Karlmennirnir gista líka fangageymslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×