Innlent

Þrjátíu skólar fá forritunarstyrki

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Sjóðurinn Forritarar framtíðarinnar hefur það hlutverk að efla forritunar-og tæknimenntun í grunn-og framhaldsskólum landsins.
Sjóðurinn Forritarar framtíðarinnar hefur það hlutverk að efla forritunar-og tæknimenntun í grunn-og framhaldsskólum landsins. Forritarar framtíðarinnar
Alls hlutu þrjátíu skólar víðs vegar um landið fjárstyrk úr sjóði Forritara framtíðarinnar. Fyrir árið 2018 var heildarúthlutun sjóðsins 4.100.000 krónur en einnig 4.550.000 í formi tölvubúnaðar.

Styrkurinn verður nýttur í að þjálfa kennara til að bæta forritunarkennslu fyrir nemendur en styrkþegar skuldbinda sig til þess að hafa forritun í námskrá tvö ár. Sjóðurinn Forritarar framtíðarinnar hefur það hlutverk að efla forritunar-og tæknimenntun í grunn-og framhaldsskólum landsins.

Sigfríður Sigurðardóttir, stjórnarmaður forritara framtíðarinnar segir að það sé markmið sjóðsins að auka áhuga barna og unglinga á forritun og tækni

„Það er ljóst að það er mikilvægt í skólastarfi að efla forritunarkunnáttu skólabarna enda byggja þær tækniframfarir sem eru að eiga sér stað núna á stafrænum grunni sem tengir ýmsa tækni saman og mun hafa áhrif á fyrirtæki og samfélög til lengri tíma.“

Með styrknum skuldbinda skólarnir sig til að hafa forritun sem hluta af námskrá skólans í að minnsta kosti tvö ár. Skólarnir þrjátíu eru Síðuskóli, Grunnskóli Vestmannaeyja, Bláskógaskóli Laugarvatni, Grunnskólinn á Eskifirði, Þelamerkurskóli, Grunnskóli Grindavíkur, Sæmundarskóli, Lindaskóli, Dalvíkurskóli, Grunnskóli Fjallabyggðar, Bláskógaskóli Reykholto, Grunnskóli Borgarfjarðar eystra, Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Vallaskóli, Grunnskóli Grundarfjarðar, Vogaskóli, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, grunnskóli Drangsness, Hvolsskóli, Sjálandsskóli, Menntaskólinn að Laugarvatni, Álfhólsskóli, Skarðshlíðarskóli, Lágafellsskóli, Menntaskólinn á Tröllaskaga, Gerðaskóli, Grunnskóli Djúpavogs og Lundarskóli.

Hollvinir sjóðsins eru Reiknistofa bankanna, Íslandsbanki, Landsbankinn, CCP, Icelandair, Össur, Advania, KOM, WebMo og menntamálaráðuneytið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×