Innlent

Þrjátíu skjálftar við Bárðarbungu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ágætlega sést til gossins á vefmyndavélum.
Ágætlega sést til gossins á vefmyndavélum. Mynd/Haraldur Sigurðsson
Rúmlega 30 skjálftar hafa mælst við Bárðarbungu á síðasta sólarhring. Um fimm skjálftar eru milli 4 og 5.

Stærsti skjálftinn varð klukkan 18:47 í gær 5,1 af stærð við norðausturbrún Bárðarbunguöskjunnar. Á annan tug skjálfta hafa mælst í ganginum, flestir um og innan við eitt stig.

Ágætlega sést til gossins á vefmyndavélum og virðist svipaður gangur í því og verið hefur undanfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×