Þrjár vikur síðan Flosi hvarf: „Rífur úr manni hjartað“ sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 27. mars 2015 16:29 Harpa vill benda á að líklega sé Flosi ekki líkur sjálfum sér, feldurinn sé að öllum líkindum töluvert meiri og að hugsanlega sé hann kominn með sýkingu í augun sem verði til þess að hann verði rauðleitur um augun.
Tæpar þrjár vikur eru síðan hundurinn Flosi hvarf frá bænum Ós í Arnarneshreppi í Eyjafirði. Fjölmargir hafa leitað Flosa, meðal annars leitarhundar, en þrátt fyrir það hefur hvorki tangur né tetur fundist. „Það er búið að fara í gegnum skóglendi og búið að ganga þetta svæði alveg fram og til baka. Bændur eru búnir að fara inn í öll sín hús og hafa fylgst með háttalagi hrafna en segja að það liggi ekkert dautt þarna úti. Leitarhundarnir hefðu líka átt að finna lykt ef hann væri dauður á svæðinu,“ segir Harpa Jörundardóttir, eigandi Flosa.Harpa ætlar ekki að gefa upp vonina.Flosi er nítján mánaða Bichon Frise rakki. Hann er örmerktur og afar ljúfur í umgengni, að sögn Hörpu. „Hann kemur úr ofboðslega vernduðu umhverfi, aldrei farið út nema bundinn og ef hann hefur orðið hræddur þá veit ég ekki hvernig hann myndi bregðast við því, því ég hef aldrei séð hann hræddan,“ segir hún.Gefast ekki upp Hörpu grunar að hugsanlega hafi einhver keyrt yfir hundinn eða jafnvel tekið hann upp í bíl hjá sér og viti ekki að hans sé saknað. „Það er samt aldrei hægt að vita hvað hefur komið fyrir. En þetta er búið að vera mjög erfitt fyrir alla aðila, strákurinn minn sem er 15 ára keypti hundinn fyrir sinn pening og er tjónið því bæði gríðarlega andlegt og fjárhagslegt fyrir hann.“ Harpa og sonur hennar ætla þó ekki að gefast upp. Hún segir Flosa einn þeirra besta vin og hluta af fjölskyldunni og biður hún því alla þá sem telja sig hafa vitneskju um farir Flosa að hafa samband við lögreglu eða hana sjálfa í síma 846-6977. „Þetta er orðinn svo ofboðslega langur tími. Þetta alveg rífur úr manni hjartað,“ segir hún að lokum.Þetta myndband var tekið nokkrum dögum áður en litli hnoðrinn okkar hreinlega hvarf út í nóttina - það sem ég vildi óska að hann færi að koma í leitirnar.Posted by Harpa Jörundardóttir on 27. mars 2015 Nú erum við búin að leita í 12 daga á svæðinu þar sem hann Flosi okkar hvarf (frá bænum Ós í Arnarneshreppi í Eyjafirði)...Posted by Harpa Jörundardóttir on 22. mars 2015
Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira