Innlent

Þrjár 99 ára vinkonur á Hvolsvelli: Sjá ekki sólina fyrir Guðna Th.

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Þrjár níutíu og níu ára vinkonur á Hvolsvelli kalla ekki allt ömmu sína því þær stunda handverk á fullum krafti og fylgjast með þjóðmálunum. Ein þeirra segist geta tekið að sér stjórn landsins því þingmenn geri ekki neitt. Magnús Hlynur Hreiðarsson heimsótti þessar hressu konur í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Um er að ræða þær Aðalheiði Kjartansdóttir og Guðrúnu Sveinsdóttur sem eru 99 ára og Maríu Jónsdóttur sem verður 99 ára eftir nokkrar vikur. Þær eru allar úr sveit og eiga samtals 104 afkomendur. Öllum líður þeim vel á Kirkjuhvoli, þær eru duglegar að prjóna, mála og ein þeirra klippir út hestamyndir.

En hverju þakka þær þennan háa aldur?

„Ef maður hugsar vel til fólks sem maður er með og reynir að koma eðlilega fram, þá held ég að það sé það besta,“ segir Aðalheiður.

María gerir mikið af því að fara með stemmur og fór hún með eina slíka, um hrúta sem pabbi hennar orti.

Hjúkrunarforstjórinn á Kirkjuhvoli, Ólöf Eggertsdóttir, segir frábært að vera með svona háaldraða heimilismenn.

„Þær eru lífsglaðar, hraustar og hafa alltaf verið duglegar að hreyfa sig. Þær hafa auðvitað verið mishraustar en virkilega lífsglaðar og skemmtilegar.“

Allar hafa vinkonurnar mikla skoðun á landsmálunum og sjá ekki sólina fyrir Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands.

En hvað segja þær um þjóðmálin og Alþingi?

„Þau eru nú alveg kolvitlaus. Ég held að ég gæti alveg eins gert jafn vel og þeir, blessaðir þingmennirnir,“ segir Guðrún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×