Innlent

Þrír yfirheyrðir vegna líkamsárásar i Garðabæ

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Allir þrír verða yfirheyrðir í dag.
Allir þrír verða yfirheyrðir í dag. Vísir/Sigurjón
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið þrjá aðila vegna líkamsárásar að heimili í Garðabæ snemma í morgun. Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna heimilisofbeldis. Aðilarnir þrír verða yfirheyrðir í dag.

Þá var einnig óskað eftir aðstoð lögreglu að heimili í Grafarvogi á sjötta tímanum í morgun vegna heimilisofbeldis. Karlmaður var handtekinn í kjölfarið vegna líkamsárásar og verður yfirheyrður í dag.

Um hálf sjö í morgun tilkynnti karlmaður í Fossvogi að vinur sinn væri að sveifla skotvopni eftir gleðskap næturinnar. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að það átti ekki við rök að styðjast en húsráðandi hélt á hníf þegar lögregla kom á vettvang. Hann var handtekinn í kjölfarið og verður yfirheyrður í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×