Enski boltinn

Þrír sem fundu sig ekki hjá Liverpool en blómstra í toppdeildum í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mario Balotelli, Peter Gulacsi og Suso.
Mario Balotelli, Peter Gulacsi og Suso. Vísir/Samsett mynd
Þrír fyrrverandi leikmenn Liverpool eru að gera það gott í þremur toppdeildum í Evrópu en sömu leikmenn fundu sig aldrei á tíma sínum á Anfield.

Lærisveinar Jürgen Klopp í Liverpool eru líklegir til að berjast um Englandsmeistaratitilinn á þessu tímabili þrátt fyrir að hafa misst toppsætið til Chelsea um helgina.

Gamlir Liverpool-menn eru líka að gera það gott og gætu einnig unnið titilinn í sínum löndum í vor.

Það var ekki pláss fyrir ítalska framherjann Mario Balotelli, ungverska markvörðinn Peter Gulacsi og spænska framherjann Suso í Liverpool en þeir hafa allir fundið sér nýtt og betra líf eftir að hafa yfirgefið Anfield.

Peter Gulacsi er leikmaður þýska liðsins RB Leipzig er hann kom til félagsins árið 2015. RB Leipzig er afar óvænt á toppnum í þýsku deildinni eftir sigur á Bayer Leverkusen um helgina.

Gulacsi er aðalmarkvörður Leipzig-liðsins og er þegar búinn að halda marki sínu fjórum sinnum hreinu í fyrstu ellefu umferðunum. Hann fékk reyndar á sig tvö mörk á móti Leverkusen en það kom ekki að sök.

Mario Balotelli er leikmaður Nice sem er á toppnum í frönsku deildinni en hann hefur skorað 6 mörk í 6 leikjum það sem af er á tímabilinu. Balotelli var þó ekki með í 1-0 sigri á Saint-Étienne um helgina.

Balotelli losnaði loksins frá Liverpool í haust en félagið leyfði þá honum að fara til Nice á frjálsri sölu. Balotelli hafði verið lánaður til AC Milan tímabilið á undan.

Spánverjinn Suso skoraði bæði mörk AC Milan í 2-2 jafntefli í nágrannaslagnum við Internazional í gær en hann hefur átt þátt í fjórum mörkum AC Milan í síðustu tveimur leikjum liðsins. AC Milan er í þriðja sæti ítölsku deildarinnar.

Suso var leikmaður Liverpool frá 2012 til 2015. Félagið lánaði hann til spænska félagsins Almería tímabilið 2013-14. Suso skrifaði undir fjögurra ára samning við AC Milan þegar samningur hans við Liverpool rann út í janúar 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×