Jól

Þrír mætir konfektmolar

Konfektgerð er vinsæl á aðventunni. Hér er girnilegur konfektmoli úr smiðju Halldórs.
Konfektgerð er vinsæl á aðventunni. Hér er girnilegur konfektmoli úr smiðju Halldórs. Mynd/Eyþór
Konfektgerð fyrir jólin verður æ algengari og margir taka slíkt dúllerí fram yfir smákökubakstur. Fjórir súkkulaðispekúlantar gefa hér þrjár uppskriftir að ljúffengum molum sem gaman er að föndra fyrir fjölskyldu og vini á aðventunni.

Halldór Kristján Sigurðsson konditori.Mynd/Eyþór
Sætt og salt

Halldór Kristján Sigurðsson konditor hefur kennt konfektgerð fyrir jólin í nítján ár og heldur því ótrauður áfram þetta árið en von er á 400 nemendur á 30 námskeið. Halldór gefur uppskrift að mola sem hefur verið hvað vinsælastur á námskeiðum hans. Hann má móta í hvaða form sem er eða jafnvel nota sem fyllingu.

3x55 g Siríus súkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti

75 g grófhakkaðar tamari ristaðar möndlur

60 g rjómi

Bræðið súkkulaðið og hitið rjóma upp að suðumarki. Hellið síðan rjómanum í súkkulaðið í litlum skömmtum. Setjið því næst möndlurnar í, kælið. Hægt er að forma þessa blöndu að vild þegar hún er orðin köld. Til dæmis rúlla með kökukefli og skera í ferkanntaða mola, en einfaldast er að gera kúlur og dífa síðan í súkkulaðið.

Moli með tvenns konar fyllingu frá Reyni í Omnom.Mynd/Ernir
Tvær ólíkar fyllingar

Reynir Grétarsson er hjá Omnom súkkulaðigerðinni ákvað að þróa dökkan konfektmola með skel úr Madagascar súkkulaðinu frá Omnom. Inn í honum er tvískipt fylling, annars vegar kirsuberjahlaup og hins vegar mjúk kramella með koníaki. Hugmyndina fékk Reynir frá jólaboði ömmu sinnar þar sem ávallt var boðið upp á ris a la mande með kirsuberjasósu og karamellusósu. Síðan bætti hann við koníaki til að gefa molanum meiri karakter.

Í skelina notaði Reynir Madagascar-súkkulaðið frá Omnom. Mynd/Ernir
Skel

Madagaskar súkkulaði frá Omnom



Kirsuberja fylling/sulta:


140 g kirsuberjapúrra (eða sykurlaus kirsuberjasafi)

80 g sykur

1,5 g gellan (frá SOSA, fæst í Garra. Einnig hægt að nota 14 g pectin)

Sykri og gellan blandað saman. Því er síðan blandað við kirsuberjapúrruna og soðið í 1 mínútu, hrært vel á meðan.



Koníak karamella


100 g sykur

60 g glúkósi

200 g rjómi

50 g koníak

10 g smjör

Sykur karamellaður í þykkbotna potti, glúkósa bætt við. Rjóminn er hitaður og helt volgum yfir karamelluna og hrært vel á meðan. Gott er að hafa karamelluna á volgri hellu á meðan þetta er gert og passa vel að sykurinn kristallist ekki. Soðið í ca 1 mínútu og koníaki bætt við og soðið í aðra mínútu. Smjöri við stofuhita hrært saman við.

Þegar konfekt molarnir eru síðan fylltir er gott að sprauta kirsuberjafyllingunni fyrst og leyfa henni að standa í um 2 tíma áður en karamellunni er sprautað í. Einnig verður að passa að hafa hana ekki of heita svo súkkulaðið bráðni ekki. Gott er að láta fyllingarnar báðar sitja í molanum í amk 12 klst áður en lokað er með Madagascar súkkulaði.

Rólódýrð systranna hjá Alltí köku.Mynd Ernir
Rólódýrð

Systurnar Kristín Eik og Katrín Ösp Gústafsdóttir hjá Allt í köku þróuðu saman konfektmolann Rólódýrð þegar þær unnu að Afmælisveislubók Disney árið 2013. Markmiðið var að búa til mola sem börn og fullorðnir gætu gert í sameiningu og notið að sama skapi. Uppskriftin er því einfölt.

Molinn geymist í allt að 2 vikur í kæli en reynsla þeirra systra er sú að þeir stoppa aldrei svo lengi.

Systurnar Kristín Eik og Katrín Ösp hönnuðu konfektmolann í semeiningu.Mynd/Gassi
1 pakki Bastogne kex frá LU

100 g smjör

400 g Róló

100 ml rjómi

200 g rjómasúkkulaði

Setjið lítil muffinsform í mini muffinspönnu, eða smjörpappír í 26 cm bökunarmót. Myljið LU kexið og þrýstið ofan í mótin. Bræðið smjörið og hellið yfir kexið. Notið flatt áhald til þess að þjappa botninn vel. Setjið Rólo og rjóma í pott og bræðið. Hellið yfir kexbotninn og kælið. Bræðið súkkulaðið og hellið yfir karamelluna. Kælið. Takið molana úr mótunum eða losið úr stóra mótinu og skerið í bita. Geymist í kæli í allt að 2 vikur.






×