Enski boltinn

Þrír hörkuleikir í enska boltanum í dag

Anton Ingi Leifsson skrifar
Úr leik Liverpool og City í fyrra.
Úr leik Liverpool og City í fyrra. Vísir/Getty
Það er heldur betur sófa sunnudagur í dag, en þrír stórleikir eru í enska boltanum. Veislan hefst klukkan 18:00 og stendur langt fram eftir degi svo sófadýrin þurfa nánast ekkert að standa upp úr sófanum.

Í hádeginu, nánar tiltekið klukkan 12.00 eru það Liverpool og Manchester City sem mætast á Anfield. Þessi lið börðust um Englandsmeistaratitilinn í fyrra, en City hefur ekki unnið á Anfield frá árinu 2003. Liverpool hefur verið á góðu skriði undanfarið og unnið síðustu fimm leiki.

City þarf nauðsynlega á öllum stigunum að halda ætli þeir sér að setja einhverja pressu á Chelsea sem leikur ekki í deildinni um helgina, vegna úrslitaleiks í deildarbikarnum. City getur minnkað bil Chelsea í tvö stig, en LIverpool getur skotist upp í fimmta sæti með sigri.

Klukkan 14.05 fær Arsenal svo Everton í heimsókn. Arsenal lá illa í vikunni gegn Monaco í Meistaradeildinni og er staðráðið í að bæta upp fyrir þau mistök, en Monaco vann fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni 1-3 á Emirates. Everton komst áfram í Evrópudeildinni með auðveldum sigri á Young Boys.

Everton hefur ekki unnið í síðustu átján viðureignum á Emirates, en Everton hefur spilað illa það sem af er tímabili. Þeir sitja í fjórtánda sæti deildarinnar, en Arsenal er í fjórða sætinu. Þeir geta skotist upp í það þriðja með sigri.

Klukkan fjögur mætast svo Lundúnarliðin, Chelsea og Tottenham, í úrslitaleik deildarbikarsins. Fyrirfram er öll pressan á Chelsea, en þeir eru án Nemanja Matic sem tekur út leikbann eftir að hafa stjakað við Ashley Barnes, leikmanni Burnley, í leik liðanna á dögunum.

Chelsea er á toppnum í deildinni, en Tottenham í því sjöunda. Deildin skiptir þó engu máli þegar komið er í svona leiki. Það er ljóst að bikar fer á loft á Stöð 2 Sport/HD í dag, en leikið er til þrautar á Wembley.

Enska úrvalsdeildin:

12.00 Liverpool - Manchester City Stöð 2 Sport 2/HD

14.05 Arsenal - Everton Stöð 2 Sport 2/HD

Enski deildarbikarinn:

16.00 Chelsea - Tottenham Stöð 2 Sport/HD




Fleiri fréttir

Sjá meira


×