Innlent

Þrír gistu fangageymslur eftir Húkkaraball

Gissur Sigurðsson skrifar
Páll Óskar skemmti gestum á Húkkaraballinu í Eyjum í gær.
Páll Óskar skemmti gestum á Húkkaraballinu í Eyjum í gær. Vísir/Óskar Friðriksson
Talilð er að um þúsund manns hafi verið á húkkaraballinu í Vestmannaeyjum í gærkvöldi, bæði innanhúss í Höllinni og utan við hana.

Þrír gista fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina, einn vegna ölvunar og tveir fyrir að hafa ráðist að manni fyrir utan Lundann undir morgun og veitt honum lítilsháttar áverka.

Þá fundust fíkniefni í fórum átta ungmenna, en í öllum tilvikum var það lítilræði og til einkanota. Veður fór batnandi í Eyjum í nótt og eru góðar horfur næstu sólarhringana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×