Innlent

Þrír fluttir með þyrlu eftir að bíll með sjö innanborðs valt

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/vilhelm
Bifreið valt í Norðurárdal seinnipartinn í dag en sjö erlendir ferðamenn voru í bílnum. Allir farþegarnir slösuðust en þrír þeirra voru fluttir með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi.

Fjórir farþeganna voru aftur á móti fluttir á spítala með sjúkrabifreiðum.

Í samtali við við lögregluna í Borganesi staðfesti lögreglumaður að þeir farþegar sem fluttir voru með þyrlu eru töluvert meira slasaðir en þeir sem fluttir voru með sjúkrabílum.

Slysið átti sér stað ofarlega í Norðurárdal á malarvegi en ekki liggur fyrir hversu alvarlega farþegarnir eru slasaðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×