Innlent

Þrír fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur

Atli Ísleifsson skrifar
Annar bíllinn lenti uppi á vegriði.
Annar bíllinn lenti uppi á vegriði. Vísir/Pjetur
Þrír voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja bíla á horni Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar á ellefta tímanum. Annar bíllinn lenti uppi á vegriði.

Talsmaður slökkviliðsins segir að þrír sjúkrabílar og dælubíll hafi verið kallaðir á vettvang.

Ekki er vitað um líðan fólksins, en læknar á slysadeild Landspítalans vildu ekki tjá sig um málið þegar Vísir hafði samband.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×