Innlent

Þrír fluttir á sjúkrahús eftir árekstur nærri Varmahlíð

Atli Ísleifsson skrifar
Loka þurfti þjóðveginum í um hálfa aðra klukkustund vegna slyssins.
Loka þurfti þjóðveginum í um hálfa aðra klukkustund vegna slyssins. Mynd/Emil K. Sævarsson
Verið er að flytja þrjá á sjúkrahúsið á Akureyri eftir árekstur tveggja bíla við Miðhús í Blönduhlíð, nokkru austur af Varmahlíð, nú í hádeginu.

Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki var einn í öðrum bílnum og tveir í hinum og voru þeir allir fluttir til Akureyrar í sjúkrabíl. Enginn er lífshættulega slasaður, en beita þurfti klippum til að ná einum hinna slösuðu út úr bílnum. Var sá mikið slasaður á fæti.

Loka þurfti þjóðveginum í rúma klukkustund vegna slyssins og var hann opnaður á ný um klukkan hálf tvö. Hálka er á þjóðveginum á þessum slóðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×