Innlent

Þriggja bíla árekstur við Veðurstofuna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag. Vísir/SKS
Þriggja bíla árekstur varð á Bústaðarvegi í grennd við Veðurstofuna á fjórða tímanum í dag. Draga þurfti bíl af vettvangi auk þess sem sjúkrabíll var sendur á staðinn.

Varð töf á umferð í skamma stund vegna árekstursins. Fjórir árekstrar hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu í dag samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild lögreglu. Um eittleytið þurfti að draga bíl af vettvangi áreksturs á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu.


Tengdar fréttir

Harður árekstur við Hringbraut

Flytja þurfti einn á slysadeild og draga bíl burtu með krana eftir árekstur á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu um tvöleytið í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×