Innlent

Þriggja bíla árekstur í brekkunni niður að Vík

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Bílarnir lentu í árekstri í brekkunni niður að Vík í Mýrdal.
Bílarnir lentu í árekstri í brekkunni niður að Vík í Mýrdal. vísir/heiða
Mikil hálka er nú á vegum á Suðurlandi, sérstaklega í nágrenni og austan við Vík í Mýrdal að því er fram kemur í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Þar segir að í morgun hafi orðið þriggja bíla árekstur í brekkunni niður að Vík og þrjár bifreiðar til viðbótar hafi farið út af veginum. Fjölmennt var í hverjum bíl en meiðsli voru ekki mikil.

Erlendir ferðamenn voru í bílunum en farþegar og ökumenn voru fluttir til nánari aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vík.

Lögreglan vill beina þeim tilmælum til vegfarenda að gefa sér tíma til ferðalaga og fara ekki af stað á vanbúnum bílum. Þá má búast við því að veður versni þegar líður á daginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×