Innlent

Þriggja bíla árekstur á Hafnarfjarðarvegi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Meiðsli á fólki eru ekki talin alvarleg að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Meiðsli á fólki eru ekki talin alvarleg að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Vísir/Pjetur
Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi á sjötta tímanum í dag. Einn var fluttur á sjúkrahús en meiðsli á fólki eru þó talin minniháttar.

Töluverður viðbúnaður er á vettvangi að sögn Rúnars Helgasonar, varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, en þrír sjúkrabílar voru sendir á slysstað. Betur reyndist þó hafa farið en á horfðist í fyrstu.

Einhverjar umferðartafir eru á Hafnarfjarðarvegi á meðan viðbragðsaðilar vinna að hreinsun á vettvangi. Þá fengust ekki frekari upplýsingar um tildrög slyssins að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×