Innlent

Þriggja barna faðir á Akureyri vann milljónir í Víkingalottóinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þriggja barna faðirinn vann 7,7 milljónir í Víkingalottóinu.
Þriggja barna faðirinn vann 7,7 milljónir í Víkingalottóinu. Vísir/Vilhelm
Ungur Akureyringur, þriggja barna faðir,  var svo heppinn að vinna bónusvinninginn í Víkingalottóinu síðasta miðvikudag.

Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að stærð Víkingalottópottsins heillaði svo hann ákvað að kippa með sér einum miða um leið og hann keypti bensín á bílinn hjá Olís.

Á miðvikudagskvöldið sá hann svo á netinu að bónusvinningurinn hafi verið seldur á Akureyri og lét renna miðanum í gegnum sölukassa daginn eftir. Þá kom í ljós að hann var vinningshafinn.

„Afgreiðslustúlkan varð, að hans sögn, hvít í framan þegar hún tilkynnti honum um upphæðina rúmlega 7,7 milljónir króna, og að hún hafi nú eiginlega verið í meira sjokki heldur en hann.  Vinningshafinn ætlar nota vinninginn til að greiða niður skuldir og í aðra almenna skynsemi,“ segir í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×