Innlent

Þriggja ára fangelsi fyrir Landsbankaránið

Kolbeinn Tumi Daðason og Bjarki Ármannsson skrifa
Frá vettvangi ránsins í Borgartúni.
Frá vettvangi ránsins í Borgartúni. Vísir/Vilhelm
Ólafur Ingi Gunnarsson og Jóel Maron Hannesson voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa brotist inn í Landsbankann í Borgartúni í desember síðastliðnum.

Dómur var kveðinn upp í gær en þeir játuðu brot sitt fyrir dómi. Báðir voru með andlitið hulið og klæddir hettupeysu, Ólafur Ingi með eftirlíkingu af skammbyssu og Jóel Maron með hníf. Ógnaði Ólafur gjaldkera með byssunni og tók peninga úr sjóðsvél sem gjaldkerinn neyddist til að opna.

Sjá einnig: Vitni lýsir ráninu í Landsbankanum

Til undirbúnings ráninu höfðu þeir tekið sendibifreið ófrjálsri hendi og komu á henni að bankanum. Þeir skildu bifreiðina eftir í gangi og óku á brott eftir ránið. Þeir földu síðar ránsfenginn og reyndu á annan hátt að dylja slóð sína. 

Lögreglan hóf þegar umfangsmikla eftirgrennslan og var myndum af ræningjunum dreift. Ábendingar bárust um að ákærðu kynnu að hafa verið að verki. Þeir gáfu sig svo fram við lögreglu að tilstuðlan aðstandenda sinna um miðnætti sama dag og ránið var framið. Þá vísuðu þeir á ránsfenginn sem komst til skila.

Frá Héraðsdómi Reykjavíkur á gamlársdag þegar mennirnir voru fyrst úrskurðaðir í gæsluvarðhald.Vísir/Egill
Mennirnir höfðu á brott með sér 558 þúsund íslenskar krónur, 1080 evrur, 10 þúsund japönsk jen, 500 danskar krónur og 20 pund, alls rúmlega 700 þúsund krónur. Útibúinu var lokað eftir ránið og viðskiptavinum og starfsfólki boðin áfallahjálp. 

Sjá einnig: Svona útveguðu ræningjarnir sér flóttabíl

Jóel Maron var með hreint sakarvottorð en Ólafur Ingi átti að baki þrjátíu daga fangelsisdóm fyrir umferðarlagabrot. Þeir eru rétt rúmlega tvítugir. 

Sendibifreiðin sem þeir flúðu á eftir ránið var í eigu Hverafoldar bakarís en þeir höfðu rænt henni í Hafnarfirði fyrr um daginn. Í viðtali við Vísi greindi Jarek Kuczynski, eigandi bakarísins, frá því að hann hafi tilkynnt að bílnum hefði verið stolið og stuttu síðar fengið þær fréttir frá lögreglu að hann hefði verið notaður í bankaráni. 

Bíllinn var skilinn eftir í Barmahlíð í Reykjavík og hófst umfangsmikil leit að þeim í Öskjuhlíðunni, þar sem meðal annars var notast við þyrlu Landhelgisgæslunnar. Alls voru fimm manns handteknir við rannsókn málsins.


Tengdar fréttir

Bankaræningjarnir áfram í gæsluvarðhaldi

Mennirnir tveir sem rændu útibú Landsbankans í Borgartúni þann 30. desember hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 7. mars en mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi síðan á gamlársdag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×